KPMG Law ehf. getur veitt fasteignafélögum margskonar þjónustu. Það helsta er t.a.m.:
- Ráðgjöf og aðstoð við stefnumótun á sviði skatta og sjálfbærni sem og ýmiss annarra atriða er varða áhrif félaganna á samfélag sitt, s.s. útreikningar á Skattaspori og Samfélagsspori.
- Sértækar skráningar á virðisaukaskattsskrá, s.s. frjáls og sérstök skráning fyrir byggingu og útleigu fasteigna sem almennt eru undanþegnar skattskyldusviði virðisaukaskatts.
- Aðstoð og ráðgjöf vegna leiðréttingarskyldu virðisaukaskatts vegna aðfanga er tengjast byggingu, endurbótum og viðhaldi fasteigna sem eru innsköttuð.
- Sérhæfð aðstoð við yfirferð skattútreikninga og gerð skattframtala.
- Ráðgjöf og aðstoð við skjalagerð vegna stofnunar fyrirtækja.
- Framkvæmd skattalegra og lögfræðilegra áreiðanleikakannana við kaup og sölu félaga.
- Kærur til stjórnvalda.
- Beiðnir um bindandi álit í skattamálum.
- Ráðgjöf og aðstoð við almenna samningagerð s.s.:
- Gerð leigusamninga um fasteignir.
- Gerð kaupsamninga um fasteignir.
- Ráðgjöf og aðstoð í tengslum við aðgerðir gegn peningaþvætti.
- Ýmiskonar aðstoð í tengslum við félagauppbyggingu o.fl. t.a.m.:
- Samrunar félaga.
- Skiptingar – færsla ákveðinna fasteigna eða fasteignahluta milli félaga innan samstæðunnar.
- Stofnun félaga.
- Slit félaga.
- Gerð kaup- og sölusamninga.
- Hækkun og lækkun hlutafjár.
- Útgreiðsla arðs.
- Samrunar félaga.