Ágúst Karl er lögmaður með framhaldsgráðu í alþjóðlegum skattarétti (e. Adv. LL.M.) frá ITC, Háskólanum í Leiden, Hollandi. Hann hefur starfað hjá KPMG ehf. frá árinu 2006 og varð hluthafi þar 2014. Ágúst Karl sat í stjórn KPMG ehf. á árunum 2017-2022 og var einn af stofnendum KPMG Law árið 2017. Ágúst Karl er einn reynslumesti ráðgjafi landsins þegar kemur að álitamálum tengdum alþjóðaviðskiptum.
Þá hefur Ágúst unnið á sviði milliverðlagningar og skattaskipulagningar í mörg ár. Ágúst hefur einnig sérhæft sig í reglum um gjaldeyrishöft og erlenda fjárfestingu á Íslandi.
Útgefið efni á sviði milliverðlagningar:
- Milliverðlagning. Lagastofnun, 2006.
- “Lost in Transfer Pricing” – the pitfalls of the EU TPD, The International Transfer Pricing Journal, No 1, Volume 16, January/February 2009.
Hægt er að hafa samband við Ágúst Karl á netfanginu: akgudmundsson@kpmg.is
-
Cand. Jur. frá Háskóla Íslands 2005
-
LL.M. í alþjóðlegum- og evrópskum skattarétti frá Háskólanum í Leiden, Hollandi 2008
-
Héraðsdómslögmaður 2010
-
Löggiltur fasteigna- og skipasali 2010