KPMG er alþjóðlegt fyrirtæki sem leggur áherslu á að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu með sjálfbærni að leiðarljósi og býður upp á frábær tækifæri til starfsþróunar í sveigjanlegu og fjölbreyttu vinnuumhverfi. Hjá KPMG á Íslandi starfa um 300 einstaklingar á 16 skrifstofum um land allt með fjölbreytta menntun og reynslu sem þjónusta viðskiptavini í einka- og opinbera geiranum af öllum stærðum og gerðum.
Sérfræðingur í áhættustjórnun (risk management consultant)
Við leitum að öflugum og áhugasömum einstaklingum á sviði áhættustjórnunar sem munu hjálpa viðskiptavinum okkar í að ná framúrskarandi árangri.
Dæmi um verkefni og ábyrgð:
- Áhættugreining og áhættustjórnun fyrirtækja (enterprise risk management).
- Aðstoð við fjármálafyrirtæki og vátryggingarfélög við uppreikning helstu áhættumælikvarða og skýrslugjöf því tengt.
- Þróun lausna og val á lausnum á sviði áhættustjórnunar.
- Endurskoðun fjárhagsupplýsinga og ferlum á sviði áhættustjórnunar.
- Ýmis önnur aðstoð við fjármálafyrirtæki.
Hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi og lausnamiðuð hugsun.
- Góð rökhugsun, skipulags- og samskiptahæfni.
- Góð hæfni á sviði Excel.
- Forritunarhæfni er kostur.
- Reynsla á sviði áhættustjórnunar er kostur.
Að vinna hjá KPMG
Okkar markmið er að vera eftirsóknarverður og framúrskarandi vinnustaður fyrir fjölbreyttan hóp af fólki. Við leggjum því mikla áherslu á að bjóða upp á heilbrigt og hvetjandi starfsumhverfi þar sem starfsfólk hefur tækifæri til að vaxa og dafna í starfi. Við náum árangri saman með því að hafa traust, sveigjanleika og góð samskipti að leiðarljósi á vinnustaðnum.
Nokkur dæmi um kosti þess að vinna hjá KPMG:
- Fjölbreytt verkefni og tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á viðskiptavini og samfélagið.
- Frábær tækifæri til að læra af leiðandi sérfræðingum og þróast í starfi.
- Fyrsta flokks mötuneyti í Borgartúni með fjölbreyttu og hollu fæði.
- Heilsueflandi vinnustaður, t.d. er bootcamp í boði tvisvar í viku í Borgartúni, hlaupaklúbbur, fjallgönguklúbbur, golfklúbbur, vikulegur fótbolti og fleira.
- Aðgangur að heilsustyrk, samgöngustyrk og styrk fyrir tímum hjá sálfræðingi.
- Sveigjanleiki til að vinna frá mismunandi skrifstofum og að heiman þegar við á.
- Einn launaður dagur á ári til sjálfboðavinnu.
- Og margt fleira.
Umsóknarfrestur er til og með 8. janúar 2023
Nánari upplýsingar veitir Erik Christianson mannauðsstjóri á echristianson@kpmg.is.